Hjalli

Hjalli

28.10.2007 13:48:31 / hjalliboy

Gunnar Hólm er það heillin

Jæja þá er litli kallinn loksins mættur;) Hann kom sem sagt þann 27.10.07 kl. 4:58 og mældist rúm 4,5 kg og 54 cm. á kengd. Við fórum uppá sjúkrahús um kl 00 og sá litli kom 5 tímum seinna. En fæðingin gekk vonum framar og stóð Inga sig alveg eins og hetja og miðað við þennan gríðalega sársauka að þá fannst mér varla heyrast múkk í henni. Það lá við að ég væri farinn að öskra hærra en hún:$ Hann kom líka á fullkomnum tíma mömmu og pabba vegna því þau voru búin að vera hérna frá því á miðvikudeginum og fóru í gærkvöldi  en náðu að sjá barnabarnið. Og nafnið sem litli ber núna er Gunnar Hólm og sækir hann það í afa sinn og langömmu frá Villingadal. En barni og móður heilsast fint og svo vill ég þakka fyrir allar kveðjurnar sem við höfum fengið...over and out

Fanney,Rúnar og Hilmir Snær skrifaði
Innilega til hamingju með drenginn. Knús og kossar M22
Gísli, Ingunn og börn skrifaði
Innilega til hamingju með drenginn. Gott að heyra að öllum heilsist vel!
Elísabet skrifaði
Til hamingju með snáðann bæði tvö. KV úr Gedveikinni (Gedved) rétt fyrir utan Horsens
Valþór skrifaði
Til hamingu með Gunnar Hólm Kem og kíki á kappann við fyrsta tækifæri kv. Valþór
Hjalli skrifaði
Takk kærlega allir og alltaf velkominn Valþór;)
Geir og Ásta skrifaði
Frábært, gaman að heyra.. kveðja frá Köben.. p.s gott að þetta var strákur, þvi ég er að safna í fótbolta lið, hvaða stöðu myndirðu telja að væri hentur fyrir Gunnar Hólm ? hehe.. Til lukku innilega
svava skrifaði
innilega til hamingju:)
HERMANN skrifaði
Til hamingju með strákinn
Sverrir í Dk skrifaði
Sæll félagi, innilega til hamingju með erfingjann!! þetta er alltaf mikið gleðiefni, frá Sverri Ansý og krökkunum, heyrumst
Eydís skrifaði
ég veit nákvæmlega hvað þú ert að hugsa!!! Gamli kall :)
Hjalli skrifaði
Takk fyrir öll saman;) Hvað helduru að eg se að hugsa Eydís hehe
Eydís skrifaði
Ég man það ekki, en ég vissi það þá haha.... Hættur að blogga eða???

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir